Jæja seinast þegar þið heyrðuð í mér var ég einmitt á fullu í verkefninu okkar í keppninni Ungir frumkvöðlar www.jai.is getið séð allt um það hér. En já við sem sagt unnum þá keppni. það var alveg geggjað við unnum sem sagt með vöruna recall2008 www.recall.is getið lesið um það hérna:D Vil bara þakka þeim sem studdu okkur og styrktu og höfðu trú á þessu verkefni okkar. Og vil ég einnig þakka þeim sem keyptu þetta forrit af okkur:) Ég gæti ekki verið ánægðari. Við förum til Svíþjóðar þann 24 júlí að keppa fyrir hönd Íslands í evrópukeppninni. Ég er alveg með spennuhnút í magnaum, þetta verður alveg geggjað, og hvað þá ef við vinnum þá keppni. Þá erum við bara að fara á fullt með þetta fyrirtæki. Við erum nú þegar búin að gera eins og hálfs árs samning við fyrirtækið office1. Þar verður hægt að nálgast forritið í framtíðinni.
Svo yfir í allt annað. Þar sem ég er að fara að klára stúdentinn núna um jólin 2008 er ég farin að skoða háskóla. Það er bara svoldið erfitt. Sko ég er búin að vera að skoða HR og HÍ og lýst mér geggjað vel á HR. En hann er bara svo dýr. Mér líst alveg ágætlega á HÍ en ég hef heyrt að viðskiptabrautin í HR sé betri.En síðan fór ég að pæla... Ég sem er svona ævintýragjörn stelpa sem elskar að ferðast um heimin. Ég er búin að vera að skoða skóla annarstaðar en á Íslandi. En ekki Danmörku heldur í sjálfri Bandaríkinni. Ég er var að skoða skóla í New York, ég er mest spenntust fyrir því. Því jú þar er ekki það heitt að maður vilji bara vera úti í sólbaði en ekki læra, en það er ekki það kalt að maður vilji frekar vera undir sæng að drekka kókó en að læra. Það er ekki það langt frá Íslandi. Það er ekki það mikið af pöddum þar sem er STÓR plús, það er fínt veður og við fáum snjó á jólunum og ég meina bara IT´S NEW YORK!! hehe hverjum hefur ekki langað að fara þanngað. En ef ég fer, þá komið þið í heimsókner það ekki? Ég ætla ekki að fara ef að þið komið ekki í heimsókn til mín. Get ekkert verið bara without you all. Eruð þið með eitthverja hugmynd á góðum skóla? Langar að læra Marketing. Ég og Sunna vinkona mín vorum eitthvað að pæla í þessu í dag. Sunna er með mér í recall verkefninu:D
Svo var hún Fanney sæta vinkona mín að eignast stóran sták, heilar 18 merkur og 57 sentimetra, stór strákur. vil bara óska henni og Stúlla til hamingju með þennan æðislega fallega strák.
Jæja endilega commentið, er farin að "læra" í spænsku
adios Sandra Kára
11. maí 2008 klukkan 19:39
Sandra Dís Káradóttir 4 athugasemdir
Einsog og flestir vita þá tók ég mér smá pási, en ég er nú samt ekki hætt. Búið að vera mikið að gera í skólanum og líka í nýja fyrirtækinu mínu. Ójá, þú last rétt. Ég á fyrirtæki, among some others:P Hehehe. Málið er þannig að ég er í áfanganum Við113 sem er markaðsfræði. Við ákvööum að taka þátt í keppninni ungur frumkvöðlar sem snýst um það að búa til fyrirtæki frá grunni, gera vöru, finna fjármagn fyrir vörunni og selja hana ,síðan að lokum að loka fyrirtækinu. Og við erum búin að gera það og með príði. Varan okkar er ReCall 2008, sem er hugbúnaður sem hjálpa krökkum að læra. Þetta byggist allt á "flash card" hugtakinu bla bla bla.. ég nenni engann veginn að segja frá þesus. En endilega farið inn á heimasíðuna okkar www.recall.is Þar er ég Almanatengsstjóri :) sem er bara fínt. Við fáum einmitt að vita núna klukkan 3 hvort að við vinnum eða ekki. Vááá hvað ég er stressuð...:S Það er þannig að þeir sem vinna fá að fara í keppni í Sviþjóð, þar sem fleiri lönd keppa í.
jæja... ég sem ætlaði að skrifa miklu meira, en það er víst ekki hægt því að krakkarnir hérna eru að dimmitera og þurfum við að fara öll út :P hehehe
Adios
Sandra
25. apríl 2008 klukkan 09:38
Sandra Dís Káradóttir 2 athugasemdir
Gleðileg jól öll saman. búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég er ekkert búin að getað bloggað.
En jæja. í þessu bloggi ætla ég að tala um hvað ég hef gert árið 2007. Ætli ég segi ekki að árið 2007 sé árið hamingjurnar. Er búin að vera svoooo hamingjusöm út árið 2007.. ég á frábærann kærasta.. frábæra vini og frábæra Fjölskyldu..
Í byrjun ársins 2007 bjó ég með henni Söru minni í Mávahlíðinni alveg til maí. Það varo einfaldlega uppáhálds tímarnir mínir á árinu. Vááá.. Partyin, chill kvöldin, eldamennskan okkar, Og að hafa alltaf hana Söru hjá mér á kvöldin til að spjalla við. ég meina... það verður ekkert betra!
Gekk mun betur í skóla á þessu ári en því seinasta
Breytti lífinu algjörlega seinnipartinn á árinu. Og tileinkaði því hollustu og líkamsrækt
Missti heil 13 kíló á árinu...;) vúúhúú
Flutti til ömmu og afa
Amma Kolla og afi Kári fluttu til Reykjavíkur
og margt margt fleira
Árið 2008
ÚTSKRIFAST:D:D:D VÚHÚ!!!
Léttast um 7 kíló
Vera kannski fyrir sunnan í sumar.
Ætla örugglega í sumarskóla
og fullt fullt meira...
Jólin voru frábært, Gissi minn kom til mín
31. desember 2007 klukkan 19:36
Sandra Dís Káradóttir 5 athugasemdir
Jæja... það er nú ekki mikið búin að gerast síðan seinast nema bara skóli, skóli, skóli!
Prófin eru að byrja á morgun og er íslenska fyrsta prófið.. en því miður fer ég ekki í það.
Það leiðinlega atvik gerist á föstudagnn að ég lennti í árekstri. Ég var s.s að koma úr laugardalnum og var að fara upp á grensás... það var grænt og ég var að keyra yfir og þá kemur eitthver gaur bara á svaka ferð og beygjir og ég dúndra á hann. Það var s.s grænt á okkur bæði en ekkert beygju ljós. Hann átti s.s að bíða eftir að ég væri komin framm hjá! En nei nei.. hann gaf bara í og BÚMM!!! bílinn í drasl!! Litla rauða toyotan mín! Ég ætlaði ekki að trúa því.. allur frem mri helmingurinn hægra meginn var bara inn í bílnum og lak rúðuvökvi út um allt! Mér fannst bara einsog bílinn væri að gráta...! Ég var auðvitað í 100% rétti þannig ég ætt að fá bílinn bættan en NEI!!! tjónið er metið upp á meira en bílinn er metin á þannig tryggingarfélagið ætlar örugglega bara að kaupa hann út Litla rauða ástin mín! sem hefur gengið með mér í gegnum súrt og sætt!! Nei.. ég bara sætti mig ekki við það.. ég meina.. COMMONE!! ég var í 100% Rétti.. og þeir ætla bara að taka ástina mína frá mér..!! Mér finnst þetta svo asnalegt!!! En já.. ég labbaði bara heil út úr bílnum og bara ekkert að.. löggan kom svo... og klippti eitthvað að bílnum og ég keyrði honum eim eftir nokkrar spurningar. En ég meina.. comone.. það er meiri segja hægt að keyra bílinn.. (reyndar ekki án þess að eitthvað fari í dekkið og alveg svaka læti, bara eitt ljós og eitt stefnuljós og húddið smá skakt en ég meina) Ohhh.. ég er svo sár við strákinn sem keyrði í veg fyrir mig.. My car...:( My Beautiful car!!
Svo fór ég bara heim til Gissa og fór að sofa með vægt sjokk því þetta var ekkert smá högg sko....! var smá ill eftir beltið.. thats it! Svo daginn eftir þegar ég vaknaði var ég með smá illt í bakinu og hálsinum sem fór svo vestnadi og vestandi út daginn þannig ég ákvað að fara upp á slysó. Konan skoðaði mig og kom í ljós að ég er tognuð í hálsinum og bakinu. Alveg öllu bakinu og hefur það komið í veg fyrir að ég geti lært! Ég get ekki setið... er með ENDALAUSAN PIRRING í bakinu.. og svíður í bakið.. ég er með endalausan hausverk sem kemur frá tognugninni í hálsinum og leiðir það einnig niður í axlir og aðeins niður í hendur... Ég er bara ónýt:( Svo rak ég hnéð í, í slysinu og er ég alveg að deyja í hnénu..:( úúúff.. svona er ég heppin ha?? alveg týpíst svona rétt fyrir próf... En jú.. það má svo sem alveg segja að ég hafi verið heppin að verr fór ekki. Ég meina ef ég hefði ekki verið í belti hefði það nú ekkert orðið fallegt.. en mig verkjar samt ekkert smá þar sem beltið var..
jæja hætt að væla
Annars er lítið að frétta... bara skólinn búinn.. prófin að ara að byrja.. og ég þarf ekki að taka lokapróf í jarðfræði því að ég náði yfir 8 í meðaleinkunn jeij.. þannig ég fer bara í 6 próf.. Kem svo heim í jólafríinu 14... vúúúhúúú!!! En ekki á toytunni :'(
Sandra Kára - sorgmædda og slasaða
02. desember 2007 klukkan 22:14
Sandra Dís Káradóttir 7 athugasemdir
Þögnin rennur eins og ryðbrunnið myrkur yfir reynd þína
Þögnin rennur í þreföldum hring kring um þögn sína
Þetta er það sem ég er að gera núna.. að greina ljóð... jeij...í þessu ljóði kemur fram endurtekning, myndlýsing og jarídí jarídí... vááá hvað ég get ekki beðið eftir að vera búinn með þennan áfanga.. þá er ég búin með alla þá íslensku sem ég þarf að taka. Alveg Dreppppp leiðinlegt!!
Helgin var bara æði!!!
Föstudagurinn!
Ég kom reyndar til blö á fimmtudaginn því ég var ekki á nagladekkjum og það var spáð snjókomu og leiðindarveðri á föstudeginum.
Á föstudeginum lærði ég í þjóðhagfræði og ensku... eftir klukkan 4 kíkti ég á rúnt með Söru og svo fór ég til Huldu og fékk þetta dýrindis lasagne hjá henni og fórum við svo á æfiningu!
Ég er ekkert SMÁ ósátt... ég var svo ekki að gera mér grein fyrir því að það skiptir ekki máli hversu gott hlaupabretta þol þú ert með... þú bætir þig EKKERT í fótboltaþoli! ohhh... pirrr pirrr pirrr... So good bye fótbolta styrkur.. ekki nema ég fari bara að æfa hér í rvk.. æjji nei nei... ég reyni bara að fá styrk í einhverju öðru.. as a model??? hahaha... As a nerd??? æjjii eða borga þetta bara sjálf.. hahahah.... En já þetta tengist föstudeginum ekki neitt.. allaveganna eftir fótboltaæfingu fór ég með Söru á bakkan.. það var mjög fínt... var edrú og allt er svo stilt. skemmti mér bara furðu vel sko. fór síðan bara heim um 2 leitið og fór að lesa í A star called henry! svvoooo metnaðarfull.
Laugardagurinn!
Ég eydd nú öllum laugardeginum mnímum í að taka bílinn minn í gegn. Það voru settir nýjir demparar undir bílinn og þreif hann allan að innan og skottið og allt sko.. og pabbi sá uim að bóna hann og svona að utan... Alveg einsog og nýr. Svo var auðvitað sett naglardekk undir bílinn... Síðan var lært smá og leikið við hana Snúllu í smá stund.. Síðan kom Gissi um 5 leitið og fór hann beint í fótbolta og fékk ína nýbónaða bílinn minn... Svo þegar Gissi kemur til baka var farið að gera sig til svo farið á uppskeruhátíðina... þetta var leiðinlegasta uppskeruhátíð til þessa En maturinn var fínn og svo er alltaf gaman að vera í góðra vina hóp. Eftir uppskeruhátíðina fórum við svo yfir í næsta sal og þar byrjaði styrktarsjóðsballið úúúúfff.. það var sko dansað.. ég og Gissi áttum sko dansgólfið... fólkið hópaðist í kringum okkar og byrjuðu að klappa Eða svona.. næstum... Þetta var hörku ball!!! Ótrúlega gaman....
Sunnudagurinn
Leti dagur nr 1 2 og 3.. bara liggja í leti og vera þunn.. en svo lögðum við Gissi af stað um 5 leitið og keyrði ég alveg að Borganesi og Gissi þaðan til Rvk..
Annars lítið að frétta.. bara vinna í dag og svona..
Jæja.. skólin búin..
Sandra Kára
29. október 2007 klukkan 15:12
Sandra Dís Káradóttir 9 athugasemdir
Jæja... Ég er ekki alveg sátt með sjálfan mig núna! átakið greinilega bara farið að slaka á. Ég fór nebbnielga þarna og tók þessa svaka sukk slappi af letin nammi fríí... Það er ekki gott.. og það kemur líka þannig fyrir þegar aður er í svona átak að maður sér engann árangur Ég s.s stend bara í stað og ekkert gerist.. er bara á núlli.. enginn árangur.. Held meiri segja að ég hafi bætt á mig heilum 200grömmum. This is not good. Núna þarf ég bara að leggja enn meira á mig.. og Hætta þessu svindli Gosh...
Afhverju, Þegar allt gengur svona vel, þá fer maður bara í eina sukk viku og svindlar bara einsog brjálaðingur? Why? Maður veit alveg að þetta bitnar ekki á neinum nema sjálfum þér
Ég er bara svo sár út í sjálfan mig.. Ég er meiri segja enn með þessa löngun að svindla... Ég sem var alveg laus við það:/ Núna er maður altaf að hugsa bara.. mmmm... ég væri sko til í núðlusúpu núna.. eða mmm.. mig langar sko í alvöru brauðn ekki spelt brauð.. með fullt af osti... svo auðvitað ís, nammi og allt það eitur! En er reyndar ALVEG losnuð við allt sem heitir KÓK og bara allt gos
En jæja.. Uppskeruhátíðin um næstu helgi... Og ég þarf að keyra ein Norður Þoli það ekki.. ekki bara það að það er geggjað dýrt að fara bara einn. því þá þarf ég að borga allt bensínið sjálf.. Heldur þá er enginn geilsaspilari í helv**** bílnum.. En jæja.. hætta öllyu röfli..
Gissi kemur ekki með mér á uppskeruhátíðina.. Hann er að fara að byrja í prófum og ætli hann þurfi ekki að læra smá fyrir þau....
Ég er að fara að vera húsmóðir í dag og Elda fyrir hann Gissa minn.. Eða Elda og ekki elda.. þannig er það að hann Gissur Jónasson hefur aldrei smakkað STAFASÚPU!!! þússt.. what?? ég bara skil það ekk.. hvernig það er hægt.. en já. ég ætla s.s að elda stafasúpu í kvöld matinn.. Ætli hann verði vonsvikinn?? því ég sagði að hann YÐRÐI að smakka hana.... ég meina.. Mér finnst hún góð
En jæja... annars ekkert að frétta.. bara rækt, svindl og læra...
kannski maður segir þá frá því að ég er hæst á einkunn í Þjóðhagfræði...! úúfff.. maður er svo gáfaður! Svo er sama sagan í stærðfræði úr öllum kafla prófunum er ég með þeim hæðstu;D
Jæja.. tími að byrja..
Sandra Kára
24. október 2007 klukkan 10:34
Sandra Dís Káradóttir 7 athugasemdir
"Ég ætla verða einsog Britney Spears ég ætla að verða einsog hún úú beibe beibe, ég ætla að verða einsog Britney spears ég ætla að verað einsog húúúún" Komin með nett æði fyrir þessu lagi..
Jæja það var vetra frí í skólanum þannig að ég skellti mér bara norðu á miðvikudaginn Og kom Begga frænka með mér.
Ég var sko ekkert búin að koma norður nema í hálfansólahring nsemma í sept síðan ég flutti Til Reykjavíkur. Ohhh.. það var svo gaman að koma norður!! herðu já svo erum við líka komin með nýjan fjölskyldumeðlin hana Kaninku Dís Eða ég er sú eina sem var samþykk því nafni, hinir vildi að hún héti Snúlla.. þannig hún heitir Kaninka Dís og kölluð Snúlla!
Á fimmtudaginn var svo bara chillað heima á meðna allir voru í vinnunni.. og og Snúlla náðum að kynnast og svona.. svo fór ég í heimsókn í vinnuna hans pabba.. eftir það fór ég svo og skokkaði góða 2,5km náði í krakkana í skolan og fór svo í ræktina og skokkaði aðra 2,5km og farið svo að lyfta. Svo var bara verið með fameliunni.
á Föstudaginn var síðan bara sofið út og í kíkt í heimsóknir og lært smá.. svo um kvöldið var farið í spákvöld til Heklu með Mömmu.. það var geggjað gaman og hlustuðum við á miðlaspólu sem mamma hafði farið til. Var einmitt að pannta mér tíma í dag Svo var farið á rúntin Með Söru Og Huldu.
Á laugardaginn kíkti ég á Erlu og Óla og litla prinsinn þeirra.. váááá hvað hann er sætur... og var ég þar þangað til næstu gestir komu... Síðan ákvað ég að hafa svona pinkuponsu matarboð og komu Hulda, Begga, Steinunn og Mundi.. bauð líka ásu og Andra en þau komust ekki því það var kalkúnn í matinn hjá þeim og bauð ég líka Söru en Örn var að elda þannig hún borðaði þar. Síðan kom Steinunn með 5lítra kút af bjór og var sturtað í sig heima hjá mér og var síðan farið á krók og kíkt á Ásu Maríu Danna Valda og Ragga áður en farið var á ballið með pöpunum..
Ballið var Geggjað.. ég skemmti mér ekkert smá mikið.. ótrúlega gaman að hitta alla þessa krakka sem maður er ekkert búinn að hitta í allt að eitt og hálft ár! ég bara skammast mín að fara ekki oftar á krókinn! Það var allavegnana geggjað gaman... Dönsuðum af okkur lappirnar og hendurnar bara líka.. en ferðin heim var ótrúlega löng heim þar sem steinunn var ælandi ALLA leiðinna....!!!
Sunnudagurinn.. þá var bara þynnka í gangi.. bara tekin smá rúntur og hjálpað Mömmu með náttúrufræðina svo lögðum við Tóti af stað heim um hálf 7 og stoppuðum í Staðarskála í smá grænmetisbrauð og kreatín;) hahaha
Ahh það var svo Gott að koma heim til Gissa.. búin að sakna hans Svvooooo mikið.. enda búin að vera langi í burtu og lengi frá honum
En já.. fréttir frá átakinu þá er ég bara búin að missa eitt og hálft kíló núna á 2 vikum:/ verð að fara að harka að mér meira núna:P hahaha;)
Jæja... farin að læra
Sandra Kára
15. október 2007 klukkan 14:47
Sandra Dís Káradóttir 5 athugasemdir
Jæja... þá er komin fimmtudagur... úfff.. kalt og það ligur við að það fari að snjóa.. það er sko að koma vetur:( Er í sögu og er EKKI að nenna því... Sjæse.... brrrrr..... kalt..:(
Það er vinnu helgi um helgina... þarf að vinna alveg svakalega mikið... frá 10-12 á laugardagsmorguninn hehehe... Annars fýla ég vinnuna mína alveg í botn.. það eina sem ég geri er að vera þarna í litlum bás og svo koma krakkarnir og leika sér... stundum koma ekkert krakkar í smá tíma.. og þá get ég bara byrjað að læra eða eitthvað... svo er maður bara að leika með krökkunum... mjög nice vinna. koma oft algjörar dúllur..
jæja.. Steinunn á afmæli á sunnudaginn og Ætlum við Gissi að kíkja með henni út að borða á ítalíu held ég. Mmmmmm... Örugglega geggjað gott... Fara svona fínt og flott út að borða...
Í dag eru heil 11 ár síðan hún Ástrós Systir mín fæddist og einnig sama dagurinn sem hún dó vááá... mér finnst bara einsog þetta hafi gerst fyrir svona 5 árum síðan. Man svo vel eftir þessu... En Blessuð sé minning hennar og vonandi líður henni vel þar sem hún er núna litli engillinn minn.
Annars hef ég ekkert mikið að segja frá.. Emil litli á afmæl í dag...Til hamingju með það litli sæti.. Hann er 2ára í dag:D
En maður er ennþá svona duglegur í ræktinni.. á eftir að fara á viktinna í þessari viku... ætla að gera það á laugardaginn... hlakkatil að vita hversu mikið fór í þessari viku.. er reyndar ekki búin að vera jafn dugleg vanalega... fór í 60ára afmælið hennar ömmu.. sem var b.t.w. frábært... þannig þar var hakkað í sig mat og kökum:/ hehhe... svo annað afmæli svona barna daginn efit og þar voru líka kökur... úff.... hehe.. en þá er það bara að vera duglegri í næstu viku...
En jæja... komin pása...
See yah...
Sandra kára.
04. október 2007 klukkan 09:50
Sandra Dís Káradóttir 6 athugasemdir
27september
Jæja.... Þetta gegnur ekki... annahvort hætti ég með þessa síðu eða fer að blogga eitthvað.... Og ég hef ákveðið að blogga... Það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði seinast.
Ég flutti suður
Ég fór til Parísar
Ég fór til Spánar
ég nenni nú ekkert að segja frá öllu því sem ég er búin að vera að gera en það er allt búið að vera skemmtilegt
Ég er með rauða bílinn í Reykjavík.. ahhh.. það er best.. held meiri að segja að ma&pa séu að spá í að selja mér hann...
Ég er komin með nýja vinnu....NO MORE 10.11 EVER AGAIN!! hehehe. Ég er s.s að vinna í kroppakoti sem er barnagæslan í ræktinni sem ég er í Baðhúsinu.
Og hey já.. talandi um ræktir þá er ég búin að vera að stunda ræktina læk kreisó síðan ég flutti hingað bara ræktin á morgnana og svona... svaka stuð og er kellan búin að missa 8 kíló tak fyrir takk... og fer minkandi... þannig næst þegar þið fyrir norðan sjá mig þá verð ég svona 12kg minni um mig;) heheh... Ég veit... En don´t worry... það koma alveg nokkur kólí á móti í vöðva sem þið getið elskað jafn mikið hehehe... so there´s no less to love...
Sakna ykkar á Blö brjálað mikið... Get ekki beðið eftir að uppskeruhátíðin verður.... Hvenær er hún annas?? vitiði það?? og vitiði hvenær styrktarsjóðsballið er?? Endilega ef þið vitið það þá látið mig vita
En jæja... kellan er farin í ræktina...
Adios Amigos
27. september 2007 klukkan 16:20
Sandra Dís Káradóttir 5 athugasemdir
08júlí
Hæhæ.
Jæja.. núna er svoldið síðan ég bloggaði seinasst og er alveg eitthvað búið að gerast síðan.
þann 23.júní varð ég einmitt 19ára:D og var afmælisdagurinn bara fínn. Gissi kom á Blönduós og við vorum að vinna á smábæjarleiknum fyrr um daginn.. síðan fórum við, ásamt Söru, Ásu og Andra á pottinn og pönnuna og keyptum viðn okkur öll flottusut og dýrustu steikinareða allir nema hún Ása sem fékk sér pizzu. Svo fékk ég ókeypis eftirrétt því ég átti afmæli. og fengu Andri og Sara sér líka eftirrétt en Gissi borðaði svo bara minn. Þegar við vorum að fara að borða þá allt í einu datt Ásu í hug að BORGA FYRIR ALLA 13.500kr takk fyrir takk.. og fékk hún sér minnst af okkur öllum...! En já bara Takk fyrir mig Ása mín
Svo eftir það þá fórum við heim til Ásu og spiluðum smá og tókum smá pictunari... og OFCOURSE... þarf næstum,e kekrt að vera að segja það hérna.. bara gaman að því.. þá auðvitað rústuðum við Gissi þeim. Ég meina.. auðvitað.. þegar Andri átti að vera að teikna gleði giskaði Ása á banana.. thats all you need to know! hehehe
Annars er ekkert mikið að frétta.. bara vinna, fótboltiog svona... var reyndar að byrja á Danska í seinstu viku..:D búin að missa um 2 kíló ógisslega dúlleg... hey váááá... já.. svo má ég audda ekki gleyma að segja ykkur frá því að ég er að fara PARSÍAR Gissi með þá BRILLERANT hugmynd að við myndum fara saman til Parísar um verslunarmanna helgina. þannig við förum 4 og komum heim 8 JEIJ... ég bara get ekki beðið París... ohhh.. hverjum hefur ekki dreymt að fara til parísar:D Við s.s förum með flugi til London og svo lest til Parísar... förum í gegnum ermasundsgöngin og svona.. ohhh.. ég er svo spennt:D svo 10.ágúst fer ég ú til spánar með fameliunni...
Svo tekur bara skólinn við.. ohhh.. ég er svo stressuð.. ég veit ekketr hvað e´g er að fara að gera... Er ég að fara að leigja með eitthverjum.. er ég að fara að leiga herbergi.. verð ég í geymslunni sem er verið að skoða fyrir mig? verð ég á götunni.. I´ve no Idea!!! Ég er alveg fáranlega stressuð... en þetta hlítur að reddast.. Or I really hope so.. Ég meina.. í versta falli verð ég á götunni Það getur nú ekkert verið það slæmt.. hahaha Svo ætlá ég að fara að leyta mér að vinnu sem ég get unnið í Rvk.. Hjálp.. þið verðið að hjálpa mér að finna eitthverja góða..
Núna um helgina var ég að skutla tvíbbunum og Áróru til Rvk. Svo á laugardeginum þá fór ég að versla og Svona á meðan Gissi var að keppa í fótbotla.. á landsmótinu í skarkvallarfótbolta.. og auðvitða Vann hann Gissi minn.. það var bara ekkert annað í myndinni.. en já.. hann og hans lið fengu s.s. allir udanlandsferð hver!!! thouse bitches.. mig langar í ókeypis utanlandsferð..! En já ég og Þórunn fórum að verlsa og verslaði ég mér
kjól
buxur
skó
peysu
Ég elska að verla.. versli versli versl.. ætla sko að versæa FULLT í parís.. The city of Love and fashion. Verð bara að vera dugleg á danska þangað til
Adios
08. júlí 2007 klukkan 20:44
Sandra Dís Káradóttir 2 athugasemdir
Um mig: Ég er fersk sveitastelpa sem elskar að djamma:D
Auglýsing
Teljari
Heimsóknir í dag: ...
Þennan mánuð: ...
Frá upphafi: ...
Klukkan
Ást
ást byrjar með kossi og endar með tárum. ást byrjar með brosi stækkar svo í koss og endar með tárum. ekki gráta yfir neinum sem grætur ekki yfir þér. traustir og góðir vinir eru erfiðir að finna. það erfiðasta sem hægt er, er að sjá einnhvern sem þú elskar, elska einnhvern annan. ekki láta eitthvað slæmt úr fortíðinni halda aftur af þér því þú ert að missa af öllu því skemmtilega sem er í nútíðinni. lífið er svo stutt, að ef þú lítur ekki í kring um þig gætirðu stundum misst af því. vinir eru eins og fjögurra blaða smárarnir, erfiðir að finna og maður verður mjög heppin þegar hann finnst. sumir gera heiminn sérstakan bara með því að vera í honum.
ef að það særir að líta aftur og þú þorir ekki að líta fram á við, þá geturu litið til hliðanna og vinur þinn er þar. hvað gerir þú þegar eina manneskjan sem getur hætt að láta þig gráta er sá sem lét þig fara að gráta. enginn er fullkominn þangað til þú verður ástfangin af honum. ef eitthvað er ekki gott þá er það ekki endirinn. margir geta farið inn og út úr lífi þínu en aðeins vinir og þeir sem þér þykir vænt um skilja fótspor eftir í hjartanu þínu.